Unnið fram á kvöld
Úff – sólin steikir á mér skallann, en samt þarf ég að vinna fram eftir. Reyndar kom ég sjálfum mér í þessa stöðu því ég skrapp frá í eftirmiðdaginn til að góna á Úlfana vinna Sheffield United ásamt Palla og ísari. Úlfarnir hafa ekki rassgat að gera í efstu deild, en samt gaman að sjá Colin Cameron – gamla Hearts-fyrirliðann – spreyta sig meðal þeirra bestu.
Kvöldmatur hjá tengdó. Skelli mér kannski á lokamínúturnar af Fylki – Grindavík þar á eftir. Sé til með það…
* * *
Fiskur, gullfiskur heimilisins að Mánagötu 24, er búinn að vera í pössun hjá mömmu og pabba. Svarti díllinn á bakinu á honum hefur snarminnkað meðan á dvölinni stóð. (Og nei – það er ekki vegna þess að þau drápu gamla fiskinn og keyptu nýjan…) Líklega best að hann fái að vera í pössun aðeins lengur – þar til Norðfjarðarheimsókninni um næstu helgi lýkur. Nú skal sjómannadagurinn tekinn með trompi fyrir austan.
* * *
Fór í bankann áðan. Þar afgreiddi mig Viðar Guðjónsson, knattspyrnukappinn knái í Fram. Hann var líklega að byrja í gjaldkeradjobbinu og þurfti þrjár tilraunir til að renna debetkortinu mínu í gegn áður en honum tókst að snúa því rétt. Spjallaði aðeins við hann um leikinn í gær. Hann var að sjálfsögðu draugfúll yfir að ná ekki að vinna f****ing KR-ingana, en það var samt betra að fá eitt stig en ekkert.
* * *
Sá nýja bók eftir Scott Adams í Máli og menningu á laugardaginn. Á ég að blæða í bók oní öll önnur útgjöld?
* * *
Nýja starfsíða Kaninkunnar er góð. Stílhrein, enda Palli alræmdur minimalisti í hönnun.