Bendi á stórmerkilega grein af vefritinu Twohundredpercent, sem er uppáhalds síðan mín um enska boltann. Greinin segir frá því að Sky-sjónvarpsrisinn hafi lokað Rivals-vefsvæðinu fyrirvaralaust, en Rivals var eitt vinsælasta net spjallsvæða og fréttaveita hjá breskum fótboltaáhugamönnum.
Eigandi vefsvæðisins sá enga ástæðu til að segja nokkrum manni frá ákvörðun sinni og skyndilega sitja mörghundruðþúsund netnotendur uppi með að hafa glatað óhemjumagni af upplýsingum, skoðanaskiptum og heimildum. Netsamfélag sem tengdi fjölda fólks vinaböndum er slegið af fyrirvaralaust vegna viðskiptaákvörðunar stórfyrirtækis.
Svona uppákomur eiga þó ekki að koma á óvart. Þær eru rökrétt afleiðing af því þegar netsamfélög eru sett undir stjórn fjölmiðlafyrirtækja.
Einhvern daginn mun Mogginn kannski skila vondu ársuppgjöri og kippa Moggabloggstölvunni úr sambandi… þá verður nú aldeilis grátur og gnístran tanna.