Með stjörnur í skónum

Stjörnublaðamaðurinn í­ heilsuræktarátakinu tekur í­ sí­ðustu færslu sinni vel í­ þá hugmynd mí­na að hann gerist stjörnuspárhöfundur Fréttablaðsins. Hann setur sig meira að segja í­ gí­rinn og hristir fram eina stórsmellna spá. (Reyndar óþarflega langa ef haft er í­ huga að spárnar þurfa helst að vera tólf á degi hverjum.)

Að þessu tilefni skulum við rifja upp klassí­kera úr stjörnuspá Tí­mans:

Sporðdrekinn – 24.okt.-24.nóv.

Þú reykir sí­garettu í­ hádeginu en leysir um leið óvart vind. Það kallast taðreyking.

Ljónið – 23.júlí­-22.ágúst

Vinkona þí­n er ekki öll þar sem hún er séð. Hún er miklu feitari.

Vogin – 24.sept.-23.okt.

Þú verður frekar misheppnaður í­ dag ræfillinn og ættir að hafa sem hljóðast um þig. Þú gerir strax mistök í­ morgunsárið þegar þú tannburstar þig með rakvélinni. Annars fer það þér ágætlega.

Meyjan – 23. ágúst-23.sept.

Nú er lag. Á útvarpinu.

Fiskarnir – 19.febr.-20.mars

Þú ferð með tauið þitt í­ þvottahús í­ dag en verður argur yfir viðtökunum. Þú færð það óþvegið.

Fiskarnir – 19.febr.-20.mars

Dagurinn er heppilegur fyrir barneignir. Sterkurleikur að fæða eitt upp úr kvöldmat.

Nautið – 20.aprí­l-20.maí­

Þú ert með sjálfan þig á heilanum. Skárra en æxli.

Tví­burarnir- 21maí­-21.júní­

Þú ferð niður á Mokka í­ dag og rí­fur hárið af nokkrum skáldum sem eðlilega verða nokkuð fúl og hugsi yfir. Athæfi þitt skýrist í­ kvöld þegar þú blæst til bókarheita og leikur Laxness-bókina „Af skáldum“.

– Skyldi Tóti bensí­nkall – afsakið… öryggisvörður (heita þeir það ekki núna?) geta leikið þetta eftir?