Frændi í heimsókn

Sko til, bara gestagangur á safninu. Hélt að þessi dagur yrði rólegur og ég þyrfti bara að fylgjast með framvindu fótboltaleikja á netinu.

En Baldur Sí­monarson, sem er í­gildi frænda mí­ns kom sem sagt í­ heimsókn og við skröfuðum heilan helling. Alltaf gaman að ræða við Baldur.

Þessi heimsókn leiddi lí­ka hugann frá óförum Luton sem er að tapa á heimavelli fyrir Grimsby þegar þetta er ritað. Það ætti þó að gleðja Bryndí­si – sem er komin með nýtt blogg og á leið til Eistlands.

Get huggað mig við að Valur sé að tapa fyrir Skaganum. Ekki að mér sé illa við Valsmenn, en annars væri svo einmannalegt á botninum. – Held að ég bloggi bara um fótbolta það sem eftir er dags.