Náði aldrei að klára teiknimyndasögubloggið mitt almennilega, sem er synd því að teiknimyndasögur eru skemmtilegri en lífið sjálft.
Ef það væri einhver dugur í manni, þá væri ég löngu byrjaður á gagnabanka þar sem teiknimyndasögur hvers dagblaðs væru skrásettar. Hvaða blað birti hvaða sögur hvenær. Svo mætti búa til skiptingu, s.s. hvað varðar framhaldssögur, spenna vs. grín, sögur fyrir börn, unglinga og fullorðna. Líklega þyrfti að stofna sérstakan flokk fyrir „einnar-myndar-sögur“. „Cosper“ í Mogganum var einnar-myndar-saga. Cosper sjálfur var mexíkói eða Suður-Evrópubúi með útsöluglott. Getur einhver upplýst mig um uppruna hans?
Adamson var í DV. Það voru þöglar myndasögur sem minntu helst á Ferdínand. Skyldi Adamson hafa verið sænskur eins og nafnið benti til?
Önnur „þögul“ teiknimyndasagna (þ.e. teikningar án talmáls) var „Henry“ í Vikunni. Þar var aðalsöguhetjan var einkar ófríður ungur drengur, nauðasköllóttur að auki. Held að engum hafi þótt Henry skemmtilegur.
Amma keypti oft Hjemmet. Þar voru Knold & Tot, Gissur gullrass og sennilega líka sögurnar um „Bellu“ (sem var í DV). Dísa frænka keypti norsku blöðin og þar var hægt að lesa um „hermennina“ sem var sería sem gerðist í herflokki þar sem heimskir nýliðar gerðu hrokafullum yfirboðurum gramt í geði. Sem barn gaf ég mér að þetta væru norskar teiknimyndir og undraðist þessa hermennskutilburði grannríkisins. Síðar komst ég að því að þetta væru fúlar bandarískar sögur.
Að endingu legg ég til að myndasögur Moggans verði endurvaktar…
* * *
Framararnir unnu fyrsta leikinn í handboltanum og það á Akureyri. Óðinn láti á gott vita.
Luton lagði topplið Port Vale 2:0 í gærkvöld. Mikið assgoti væri gaman að komast í umspil í vor…
* * *
Guðmundur frændi minn ætlar að gera um mig heimildarmynd. Hún verður því miður ekki sýnd í sjónvarpinu, heldur er þetta skólaverkefni í FB. Breiðhyltingar hafa alltaf verið svalastir í myndbandagerð af öllum framhaldsskólunum.
Og talandi um heimildarmyndir, þá var myndin um MS-félagið í gær alveg þokkaleg. Skemmtilegast og fróðlegast var að sjá viðtölin við sjúklingana, en þegar vísindamennirnir fóru að delera um gen og litninga held ég að allir áhorfendur hafi týnst á augabragði.
* * *
Volvoinn er á verkstæði – en hafið ekki áhyggjur, þetta á bara að vera smáviðgerð á svissinum sem alltaf hefur verið til vandræða…