Er alvarlega að hugsa um að leita mér að nýrri vinnu. Geri mér grein fyrir að núverandi starf hefur ýmsa kosti og að enn er ýmsum verkefnum ólokið – en samt…
Þannig að ef einhver þarna úti er að leita að 28 ára ára gömlum sagnfræðimenntuðum kjaftaskúm sem getur bæði skrifað og talað, þá íhuga ég öll alvarleg tilboð. (stefan.palsson@or.is)
Jamm
* * *
Enginn gat svarað getraun dagsins. Svarið er það að hr. Freudenberg var síðasti maðurinn sem dó við að reyna að flýja yfir Berlínarmúrinn, í marsmánuði 1989 – örfáum mánuðum áður en hann var rifinn. Bömmer.