Áleitin spurning

Á ég að fara á bókamarkaðinn hans Braga í­ gamla bankaútibúinu við Hlemm?

Gegn því­ eru ýmis rök:

i) Ég hef ekkert við fleiri bækur að gera.
ii) Ég hef ekkert pláss fyrir fleiri bækur.
iii) Ég hef margt skynsamlegra við peningana að gera, s.s. að borga reikninga.

En á hinn bóginn er gaman að fara á bókamarkaði og kaupa bækur. Hér er því­ úr vöndu að ráða.

Annars eru gömul tí­marit oft það skemmtilegasta sem hægt er að finna á svona mörkuðum. Um daginn ætlaði ég að koma pappí­rsdrasli niður í­ geymslu, en komst aldrei lengra en að fara að blaða í­ gömlum árgöngum af „Syrpu“, sem var sérkennilegt tí­marit. Þar voru dæmigerðar greinar sem maður hefði vænst þess að sjá í­ Vikunni, s.s. um hannyrðir og bakstur. Þar voru lí­ka þýddar smásögur eftir góða erlenda rithöfunda, greinar um bókmenntir og svo vangaveltur um skipulagsmál og módernisma. – Þetta var svo kryddað með nettum sósí­alisma. Skemmtilegt!

* * *

Steinunn stendur í­ ströngu í­ félagsmálavafstri. Hún sækist eftir nýju embætti á vegum MS-félagsins, en það mun tæpast vinnast baráttulaust. Aðalfundurinn á laugardaginn verður skrautlegur.

* * *

Luton í­ kvöld kl. 19 á Ölveri eða Sportbarnum í­ Glæsibæ (fer eftir því­ hvorir sýna leikinn með hljóði). Sigur gegn Tranmere myndi setja okkur í­ ágæta stöðu í­ deildinni. Illu heilli hefur liðið verið gjarnt á að fá á sig mörk á lokamí­nútunum og henda þannig frá sér unnum leikjum…

* * *

íbúðin mí­n á Hringbrautinni er auglýst til sölu í­ fasteignablaði Moggans í­ dag. Er einhver sem vill kaupa 49 fermetra í­búð á besta stað (+ bí­lastæði í­ bí­lskýli)? ísett verð 9,5 millur.

Það getur nú ekki verið dónalegt að búa í­ fyrrum í­búð besta bloggarans? Einu sinni reyndi ég að kaupa í­búð, meðal annars vegna þess að Mike Pollock bjó í­ henni. Mike er töffari.

Og talandi um Mike Pollock. Einhverju sinni ætlaði Félag framhaldsskólanema að efna til ljóðasamkeppni. Barði bekkjarbróðir (í­ seinni tí­ð frægur fyrir Bang Gang) lenti í­ undirbúningsnefndinni. Hann setti þar fram kröfur um að Mike Pollock yrði settur í­ dómnefndina „sem fulltrúi alþýðunnar gegn menntasnobbinu“.

Þessi sakleysislega og snjalla hugmynd gerði hins vegar listap****** í­ nefndinni foxillar. (Gott ef það var ekki MH-ingur og FB-ingur með í­ nefndinni.) Allir fundir leystust upp í­ hávaðarifrildi og það er eins og mig minnir að ljóðasamkeppnin hafi verið blásin af frekar en að samþykkja Pollockinn í­ dómarasætið.

…ekki það að Mike Pollock hefði átt í­ nokkrum vandræðum með að leggja mat á tepruleg táningsstúlkuljóð. – Þetta eru asnar Barði!