(Sleppti fyrirsögn, datt bara ekkert sniðugt eða lýsandi í hug annað en „Fimmtudagur“ – og það er lítið grætt á slíku.)
Fékk þær gleðifregnir að læknunum hafi tekist vel upp við aðgerðina á mömmu. Hún fór í brjósklosuppskurð og má sig væntanlega ekkert hreyfa næstu vikurnar. Uppskurðir eru aldrei tilhlökkunarefni.
* * *
Bankinn sendi mig öfugan til baka. Það vantaði eina undirskrift á pappírana og ég fæ því ekki fullar hendur yfirdráttar fyrr en á morgun. Ætli maður þrauki það ekki…
* * *
SHA-fundurinn á Vídalín í gær var hörkugóður. Vel mætt og ekki bara sömu gömlu andlitin. Held að a.m.k. átta til tíu manns hafi bæst í samtökin, sem er mjög gott á einu kvöldi.
Vídalín er þó fremur leiður staður. Næsti svona fundur verður á Nelly´s.
* * *
Níðþunga getraunin hans Sverris fjallar örugglega um einhverja aukapersónu í Ynglingasögu. Nenni ekki að elta ólar við það frekar.
* * *
Það styttist í að Devito´s-pizza flytji í húsnæðið þar sem Kínamúrinn var áður til húsa. Allt sem þangað flytur deyr – það sýnir sagan.
Mikill missir verður af gamla pizza-kofanum. Eflaust munu vondir menn vilja rífa hann og búa til bílastæði. Betra væri að flytja hann upp í írbæ. Þess er ekki langt að bíða að pizza-menningin verði orðin viðurkenndur hluti af þjóðarsögunni.
* * *
Á morgun koma sagnfræðinemar í vísindaferð á Minjasafn Orkuveitunnar. Þar fá þeir leiðsögn um safnið og ræðu frá millistjórnandanum um ágæti fyrirtækisins – ásamt samlokum og einhverri bjórlögg. Annars hefur Orkuveitan dregið gríðarlega úr svona vísindaferðum. Þegar ég byrjaði hjá Rafveitunni flæddi allt í brennivíni og snitturnar voru ekki skornar við nögl. Held að hingað hafi ekki komið hópur í vísindaferð í meira en ár!