Erindið á ráðstefnunni í Ráðhúsinu tókst vel. Guðmundur Steingrímsson talaði næstur á undan mér og mér krossbrá þegar hann lagði út af sömu sögu og ég ætlaði að nota – smásögu Borges af kortagerðarmanninum sem útbjó kort í mælikvarðanum einn á móti einum.
Sem betur fer hafði ég hugsað mér að byrja á tveimur punktum – Borges annars vegar en brandara úr Black Adder í fyrri heimsstyrjöldinni hins vegar. Þannig gat ég sloppið fyrir horn og bjargað erindinu. – Slembilukka!
* * *
Landsráðstefna SHA gekk vel. Líst mjög vel á miðnefndina sem kjörin var og stemningin var fín á málþinginu. Afar sáttur við útkomuna. Finnst líka gaman að sjá hvað Björn Bjarnason ergir sig yfir viðtalinu við mig í Fréttablaðinu. Gneistinn tekur vel á því máli á sinni síðu.
* * *
Þóra systir er útskrifuð úr verkfræðinni. Fagna því allir góðir menn. Fínt partý. Góður matur, nóg af afgöngum í bröns í morgun.
* * *
Luton með jafntefli á heimavelli. Fram tapaði í handboltanum. Hearts með góðan sigur. Ekkert sérstök útkoma í heildina litið. Hvenær fæ ég nýja Luton-búninginn í pósti?