Húsnæðisbrask

Ég hef áður lýst því­ hérna hversu leiðinlegt er að þurfa að bjástra við að kaupa og selja í­búðir. íbúðarsala er eins og hástökk og stangarstökk – endar alltaf á antí­klí­maxi. Það skiptir ekki máli þótt maður fái hærri greiðslu út úr ævintýrinu en maður lagði upp með, vegna þess að maður nær aldrei tölunni sem fasteignasalin setti upp þá verður maður ekki fyllilega sáttur.

Á morgun gerði ég gagntilboð náunga sem ólmur vill kaupa. Fjári væri gott að koma þessu endanlega frá. – Krossleggjum putta.

* * *

Það er kominn hiti á Mánagötuna aftur, eftir að skipt var um þrýstivatnsloka. Fagna því­ allir góðir menn, einkum í­ ljósi þess að hitareikningurinn fyrir húsið var skuggalega hár þótt enginn væri hitinn.

* * *

Landsfundurinn var fí­nn. Ekki er ég hins vegar neinn maður í­ að standa í­ partýum til klukkan sex og vakna svo í­ morgunmat klukkan átta. Þetta verður ekki endurtekið.