Jæja, í dag eigum við Steinunn tveggja ára afmæli. Fyrir sléttu ári síðan gerði ég tímamótunum skil með þessari færslu. Hún vakti mikil viðbrögð. Látum það bara nægja um þennan dag í sögunni.
* * *
Mogginn birtir í dag grein eftir Steinunni, um málefni Sjónvarpsins. Gott mál!
* * *
Á dag tók ég að mér nýtt risaverkefni í vinnunni. Af hverju geri ég þetta alltaf?
* * *
Við tækifæri pönkast ég á Lánasjóðnum. Meira um það síðar…