Bætti í gær nýju starfi á listann yfir skítadjobb sem ég ætla ekki að snúa mér að þegar barbararnir verða búnir að leggja niður safnið og segja mér upp. – Loftnetsviðgerðir!
Fengum mann til að laga loftnetið á Mánagötunni í gær. Hann kom í miðjum hríðarbyl, rauk upp á þak og klöngraðist upp á reykháfinn með allskonar mælitæki og drasl. Ég stóð í þakhleranum og fylgdist með. Varð kalt við það eitt að horfa á manninn vinna. – Ó hvað það er gott að vera í huggulegri innivinnu.
* * *
Framararnir voru langflottastir gegn HK í gær. Við Valur mættum glaðbeittir og bjuggum okkur undir að fylgjast með sætri hefnd fyrir undanúrslitin í bikarnum í fyrra. Það gekk eftir þótt tæpt hafi það staðið um tíma.
Á handboltakvöldi kom Júlíus Jónasson, þjálfari íR og hældist um vegna þess að íR-ingarnir lentu í efsta sæti í sururriðli Íslandsmótsins – og væru því í raun nokkurs konar haustmeistarar, „því þetta væri sterkari riðillinn“. Skemmtilegt er að skoða bikarkeppnina í því ljósi. Þar eru komin þrjú lið í undanúrslitin: Fram, KA og Víkingur – öll úr norðurriðli. Á kvöld mun fjórða liðið bætast í hópinn og telja má mun líklegra að það verði Valur heldur en Vestmannaeyjar. Suðurriðill hvað?