Bögg og leiðindi. Var að taka á móti skólahópi, eftir nokkurt hlé – því það komu engir krakkar í gær.
Ég taldi kennslusalinn vera í fínu lagi, enda tekinn í gegn í lok vinnudags á föstudag. Nema hvað, um kvöldmatarleytið á föstudaginn kom hingað hópur frímúrara í móttöku og kynningu. Þeir fengu að fara í salinn.
Eins og venjulega reynast mestu skemmdirnar á tilraunabásunum í Rafheimum vera eftir þessar heimsóknir. Þegar miðaldra karlmenn fara að fikta – þá verða skemmdirnar.
Karlarnir snara sér í tilraunirnar – að sjálfsögðu án þess að lesa fyrirmælin á verkefnablöðunum vegna þess að þeir eru svo klárir. Því næst, þegar ekkert gengur upp hjá þeim hugsa þeir að það hljóti að vera vegna þess að það eigi að beita ofbeldi og þvinga hlutina í tilraunabásunum til hlýðni – og auðvitað hugsa þeir ekkert út í að tilraunirnar eru hannaðar með tíu ára börn í huga og því varla líklegt að fullorðinn karl eigi að þurfa að beita öllu afli.
Þetta er ástæðan fyrir því að við verðum að hafa Rafheima lokaða almenningi – fullorðnu karlarnir sem rífa allt og slíta. Krakkagrísirnir eyðileggja nær aldrei neitt. 300 börn valda að jafnaði minna tjóni en 10 fullorðnir – ótrúlegt en satt!