Hmmm… er besti og frægasti bloggarinn að leiða síðuna sína út í hreina lágkúru með umræðu um fret og búkhljóð? Nei, ekki alveg.
En það er merkilegt með prump (sem er reyndar eitt fullkomnasta orð í íslenskri tungu – því orðið sjálft nær verknaðinum svo frábærlega) að þótt það eigi að heita fullkomlega líffræðilegt fyrirbæri, þá virðist það taka mið af félagslegum aðstæðum viðkomandi.
Eins undarlega og það kann að hljóma prumpa pör sem eru nýtekin saman mun minna en pör sem hafa verið saman lengi. Fyrri hópurinn virðist nánast aldrei leysa vind, en sá síðari fretar eins og hrossabrestir við öll tækifæri. – Já, ég veit að þetta er ekki virðuleg umræða, en hún er nauðsynleg engu að síður.
Á þessu eru nokkrar skýringar. Ein er sú að búskapur hafi þau áhrif á þarmaflóru fólks að það losi gas í tíma og ótíma. – Þessi kenning hljómar ekki sennilega.
Önnur skýring er sú að í tilhugalífinu, vilji fólk síður senda frá sér búkhljóð og nái því meðvitað og ómeðvitað að bæla þessa líkamsstarfsemi sína niður. Ólíklegt? Tja, dómsmálaráðherra trúir því að til sé fólk sem geti flogið með tilstilli hugarorku – hví ættu ástsjúkir unglingar þá ekki að geta tamið gerlana í skeifugörninni?
Þriðja – og að mínu viti flottasta skýringin, er sú að endorfín dragi úr prump-framleiðslu líkamans. Þegar fólk er að byrja að draga sig saman, stressast það upp, endorfínframleiðslan fer á fullt og metan-vinnslan fellur. Með auknu sjálfsöryggi slaknar á taugunum og fólk getur byrjað að reka við af áður óþekktum krafti.
– Hvað segja menn um þessa kenningu?