Þegar ég var gríslingur í Melaskólanum, var Úlfarsfell lengst úti í rassgati. Einu sinni var meira að segja farið þangað í skólaferðalag. Núna hefur það hins vegar verið upplýst að Fram muni flytja í hlíðar Úlfarsfells innan fárra ára. Merkilegt.
Þótt tilhugsunin um að Fram verði úthverfaklúbbur sé skringileg, þá fagna ég þessari niðurstöðu. Svæðið í Safamýrinni er einfaldlega alltof þröngt núna og einhver verður að sinna þessum nýju hverfum í óbyggðum.
Það er vonandi að ný staðsetning og betri aðstaða verði til þess að Framarar fari að stunda fleiri íþróttagreinar. Sem stendur eru innan félagsins skíðadeild, handknattleiksdeild og knattspyrnudeild. Um stöðu skíðadeildarinnar veit ég ekkert, þótt Steinunn hafi æft þar á sínum tíma (og telst því að sjálfsögðu Framari).
Á handboltanum hafa yngri flokkarnir verið sterkir sem og meistaraflokkur karla, en meistaraflokkur kvenna hefur verið í mikilli lægð undanfarin ár. Á fótboltanum er ekki kvennalið í meistaraflokki og held ekki einu sinni 2. flokkur heldur – sem er afleitt.
Sú var tíðin að Framararnir héldu úti blakliði og körfuboltadeild var lengi starfrækt áður en hún fór á hausinn. ín þess að ég hefði nokkurn áhuga á að mæta á blak- eða körfuboltaleiki, þá væri nú vinalegt að sjá nafn Fram á stigatöflunni í þeim greinum aftur.
Eins kemur fram að á nýja svæðinu verði sundlaug. Það gefur því auga leið að Framarar þurfa að stofna sunddeild – eða jafnvel sundknattleikslið, það væri últrasvalt.
Fleirir skemmtilegar deildir sem hægt væri að stofna:
* Krikketdeild Fram
* Lacrossedeild Fram
* Rugbydeild Fram
* Grísk-rómversk glímudeild Fram (fangbrögð)
* Pólódeild Fram (einu skemmtilegu hestaíþróttirnar)
Ég er strax farinn að hlakka til…