Mánagatan var með líflegasta móti í gær. Fjórir gestir þegar mest var.
Við Palli komum af pönkæfingu til að þrykkja út nokkur barmmerki fyrir Steindór VG-mann og friðarsinna, en hann mun vera að reyna að ná kjöri sem forseti Framtíðarinnar í MR. Steindór leit svo við síðar um kvöldið að ná í merkin. Þá sat Vigdís mágkona mín fyrir í stofunni og var að horfa á upptöku af myndinni „Á skóm drekans“.
Loks bankaði Þóra, frænka Steinunnar, upp á. Hún er í bænum á einhverju tölvunámskeiði og var svikin um gistingu. Fékk að koma sér fyrir í bóka- og draslherberginu okkar, þar sem fólk verður nú að skáskjóta sér milli staflanna af rusli sem liggur á öllum gólfum.
* * *
Martin Kemp var í aðalhlutverki í einhverjum breskum þætti eða sjónvarpsmynd í gærkvöld á Sjónvarpinu. Kemp lék þrjót í Eastenders um árabil áður en hann lét skrifa persónu sína út úr þáttunum með því að farast í eldhafi eftir að keyra á vegg. – Þetta er óvenjuleg útleið fyrir Eastenders-leikara, því yfirleitt hverfa þeir á þann hátt að mögulegt sé að skrifa þá aftur inn í þættina.
Kemp ættu hins vegar flestir að kannast við úr Spandau Ballet. Man ekki hvort hann var á gítar eða bassa.