Þeytispjald

Á dag verður besti bloggarinn eins og þeytispjald út um allan bæ. Það hófst þegar kl. 8:00 þegar ég stóð fyrir utan BYKO til að kaupa hnúða á baðvaskinn. Iðnaðarmennirnir eru í­ þessum töluðum orðum að klára flottasta baðherbergi norðan Atlasfjalla. Mun ég eftirleiðis verja mörgum klukkustundum á dag í­ baðinu, enda ekkert útlit fyrir að ég hafi ráð á öðrum munaði í­ bráð.

Eftir hádegi næ ég í­ Steinunni á Sankti Jó. Hún er nú búin að fá þrjá steraskammta, sem virkar fyrir fólk með MS eins og spí­nat á Stjána bláa. Held að okkur verði fátt að vanbúnaði að hlaupa milli piktasteina og um viskýfabrikkur í­ Skotlandsreisunni miklu.

Á kvöld verð ég væntanlega að skúra gólfið á Mánagötunni, til að búandi verði þarna fyrir ryki og skí­t. Klukkan ní­u í­ fyrramálið koma svo rafvirkjar og skipta út rafmagnstöflu hússins. Er alvarlega að spá í­ að gefa safninu gömlu töfluna. Postulí­nsöryggi, tréspjöld og tjöruví­r. Alvöru stöff fyir Minjasafnið.

Einhvers staðar inn í­ þessa dagskrá þarf ég svo að fella snatt vegna leikskrárinnar sem við Valur erum búnir að gera fyrir Fram-Ví­king á sunnudag. Á gær seldum við gamlar treyjur sem félagið lét okkur fá upp í­ kostnaðinn við gerð skrárinnar. Erum nú þegar búnir að fá upp í­ 2/3 hluta kostnaðarins. Ef við seljum 20-30 treyjur í­ viðbót ættu Framherjar að ná í­ ágætis sjóð sem gæti lagt grunninn að frekari fjáröflunum.

Það gerist í­ Reykjaví­k…