Spámaðurinn illi…
Enginn er ég spámaður, það er víst rækilega að koma í ljós núna eftir 16 liða úrslitin.
Svo virðist sem nálega hver einasti leikur sé að fara illa í þessari keppni og um leið og ég byrja að styðja e-ð lið, þá tapar það strax. Það er helst að hægt sé að hugga sig við sigur Tyrkja, þótt seint teljist þeir spila skemmtilega knattspyrnu.
Á maður að reyna sig við fjórðungsúrslitin? Tja, það verður varla mikið verra en síðast:
England – Brasilía. Hvílík örlög að þurfa að halda með Brasilíu gegn ensku dusilmennunum! Það bara má ekki gerast að Tjallakvikindin fari í undanúrslit – ég tek það ekki í mál!
Tyrkland – Senegal. Hér munu mínir menn Tyrkir standa sig í stykkinu og tryggja sér öruggan sigur og sæti í undanúrslitum gegn Brössum. – Getur Tyrkland strítt Brasilíu í þeim leik? Tja, hvers vegna ekki?
Spánn – ítalía. Helvítis ítalíuliðið ætti ekki að vera komið þetta langt. Nú verða Spánverjar að girða sig í brók og vinna. Annars er allt tapað! (Rosalega hef ég samt slæma tilfinningu fyrir þessum leik.
Bandaríkin – Þýskaland. Geta Kanar leikið eftir afrek sitt frá 1930 og farið í undanúrslit? Það væri svo sem gleðilegt ef það kæmi Þjóðverjum úr keppni. Ekki líklegt samt. – Þjóðverjar fara áfram og tapa svo í undanúrslitum og svo aftur í leiknum um þriðja sætið.
– Spánn gegn Tyrklandi í úrslitum? Ekki amalegt það!
* * *
Nenni ekki að gefa skýrslu um atburði 17. júní. Þeir sem vilja fá heilsteypta mynd af ferðum mínum þann daginn geta lesið Sverri og Steinunni.
* * *
Það er fyndið að Palli stæri sig af því að vera hættur að reykja, en springi svo í bindindinu áður en hann nær að slökkva á tölvunni. – Frá því að ég kynntist Páli hefur hann lýst því yfir á nokkurra vikna fresti að hann sé hættur að reykja. Við þessi heit stendur hann að jafnaði í 2-5 daga. Hins vegar þrætir hann alltaf fyrir það eftir á að hann hafi hætt – heldur segist hann alltaf hafa „lagt grunninn að því að hætta“.
* * *
Jæja, þá er það eldamennskudagur í dag. Steinunn verður að kenna einhverjum kínverskum stelpum ensku í kvöld og er búin að panta krásir þegar heim er komið.
Seinna í kvöld er stefnan tekin á fund með dönskum ESB-andstæðingi, ef ég nenni.
Svo virðist sem krikketæfing kvöldsins hafi verið blásin af vegna veðurs. Það hljóta að vera vonbrigði fyrir suma.
* * *
Mér leiðist!