Jæja, strangt til tekið á það að heita svo að maður sé kominn aftur til landsins. Einhvern veginn finnst mér ég samt ekki vera lentur ennþá.
Skotlandsferðin var frábær, einkum þó dvölin á Islay. Ardbeg var sigurvegari ferðarinnar. Er ekki fjarri því að það sé orðið uppáhalds viskýið mitt núna.
Óvæntasti smellurinn var þó Jura. Enginn í hópnum hafði miklar væntingar til þeirra, en leiðsögnin í verksmiðjunni var einhver sú besta af öllum og smökkunin kom rækilega á óvart. – Keypti mér flösku af séráfylltu fimmtán ára – innan við þúsund flöskur framleiddar af því og einungis selt í verksmiðjunni. Þetta opna ég á þrítugsafmælinu.
Meira síðar.