Jæja, það halda áfram að raðast á mann félagsstörfin.
Á byrjun mánaðarins var aðalfundur Knattspyrnufélagsins FRAM. Einhver fékk þá hugmynd að gott væri að fá mig í varastjórn, en þar sem ég var í útlandinu náðist ekki í mig fyrir fundinn. Guðmundur formaður greip því til þess ráðs að hringja í afa, sem gaf samþykki fyrir mína hönd.
Menn eiga að hlýða öfum sínum, þannig að nú er ég orðinn varamaður í stjórn FRAM. Læt mér það vel líka.
* * *
Doktor Gunni varpar öndinni léttar eftir að búðarloka í sportvöruverslun rétti honum bækling þess efnis að Nike ráði ekki börn undir 18 ára aldri í vinnu.
Ekki dreg ég í efa að það sé satt og rétt. Það eru eflaust engin 3ja heimsbörn á launaskrá Nike-fyrirtækisins. Hins vegar eru fyrirtæki á borð við Nike alvön að fela undirverktökum stærstan hluta framleiðslunnar og þykjast saklaus af því hvernig þeir haga sínum málum. – Það eru því góðar líkur á að fínu skórnir hans Gunnars hafi verið gerðir af krakkagreyjum í þrælakistu í Indónesíu.
* * *
Heyrði í fréttum að byrjað sé að sprengja í göngunum undir Almannaskarð. Því fagna allir góðir menn, enda stórhættulegur vegur sem kostað hefur mannslíf. Hlakka til að fá næsta eintak Framkvæmdafrétta Vegagerðarinnar. Vonandi verður þar birt framvindukort á sama hátt og af Fáskrúðsfjarðargöngum.
Minnir mig á að Guðmundur Karl, farandverkamaður og jarðganganörd, skrifaði grein í Austurgluggann á dögunum. Hann krefst þess að Siglufjarðargöng verði blásin af, en stutt göng milli Reyðarfjarðar og Eskifjarðar auk lægri tvíbreiðra ganga undir Oddskarðið sett í forgang. – Ekki galið.