Hrönn og Svenni flytja senn í Hafnarfjörðinn í nýja og fína íbúð. Þau hafa því innkallað borðstofuborðið sitt sem staðið hefur á Mánagötunni um árabil. Þetta hefur í för með sér vandamál en jafnframt sóknarfæri fyrir okkur Steinunni.
Eigum við að taka upp japanskt borðhald, þar sem gestir sitja á hækjum sér á gólfinu? Eigum við að nota tækifærið til að koma upp vinnuaðstöðu í gesta-/bóka-/draslherberginu og venja okkur af þeim ósið að vinna við tölvuna í stofunni? Eða eigum við kannski bara að finna okkur svipað borð (helst þó aðeins minna) í Góða hirðinum? – Hér er svo sannarlega úr vöndu að ráða.
Eftir stendur að heimilið vantar hillur fyrir hvort tveggja bækur og geisladiska. Spurning hvort ég ætti ekki að bjalla í Lánasjóðinn og útskýra fyrir þeim að endurnýjunar og nýbygginga sé þörf í búslóðarmálum. Eflaust munu þeir hafa fullan skilning á því og hætta við að byrja að rukka mig um greiðslur á námslánum í ár.