Rafmagnsmóri

Það er reimt í­ kofanum.

Ekki hefði ég reyndar trúað því­ í­ innan við 40 ára gömlu húsi, en staðreyndirnar tala sí­nu máli.

Hurðir sem búið var að læsa reynast opnar. Kveikt er á útvarpi í­ lokuðu herbergi. Mannaferðir heyrast en enginn kemur í­ ljós. Og svo eru það hinar sí­felldu og hvimleiðu senur þegar rafmagnsleikfangið sem Óli Guðmunds föndraði – hrekkur í­ gang að sjálfu sér.

Það er greinilegt að framkvæmdirnar í­ hliðarsalnum í­ Rafheimum hafa raskað ró einhvers rafmagnsmóra. Verði honum að góðu. Ekkert bendir til annars en að um vinalegan draug sé að ræða, sem finnst skemmtilegt að fikta í­ rafmagnsdóti og er andsnúinn læstum hurðum. Held við eigum ekki í­ vandræðum með að aðlagast þessu – enda hálgerðir safndraugar sjálfir.

* * *

Luton spilar við Ajax í­ lok mánaðarins. Nú væri gaman að stökkva til Englands!

* * *

CHOPIN 2004 – er enn í­ fullum gangi. Fljótlega verður hætt að taka við nýjum tilnefningum, valið verður úr þeim og svo hefst keppnin. Hún verður með útsláttarfyrirkomulagi.

Ójá.