Hver er stærsti dvergur í heimi – og hver er minnsti risinn? Flestir hafa skemmt sér við rökfræðilegar þversagnir af þessu tagi.
Til skamms tíma hélt ég að bonsai-tré væru samkvæmt skilgreiningu dvergvaxin tré. Núna upplýsir Mogginn hins vegar að hægt sé að skoða stærsta bonsai-tré landsins. Hvenær hættir dvergtré að vera dvergtré og verður – tja, bara tré?
* * *
Komið heim úr Búðardalsferð um hádegisbilið. Meðal áhugaverðustu þátta ferðalagsins var ferð um Barðaströndina og sigling með Baldri yfir Breiðafjörð. Gengum í áttina að Sjöundá. Þangað hafði ég ekki komið áður, en Sjöundá hefur þó lengi verið mér kær.
* * *
Á kvöld verður étið skyr og hesthúsað aðalbláberjum. Sjálfur er ég þó meiri krækiberjakarl. Best er að blanda skyri og krækiberjum til helminga þannig að skyrið standi sjálft. Namm, krækiber!
* * *
Á tengslum við íþróttakeppnir helgarinnar hef ég ákveðið að hefja miklar heitstrengingar. Ef íslenska landsliðið vinnur Suður-Kóreumenn í fyrramálið mun ég taka til í bílnum mínum og skola af honum skítinn.
Ef FRAMarar vinna KA-menn fyrir norðan á laugardag mun ég taka til á skrifstofunni minni.
Þeir sem séð hafa bílinn minn eða skrifstofuna vita að þetta eru ekki litlar yfirlýsingar!
Jamm.