Dýrt kveðið
Rafveitustarfsmenn hafa löngum verið taldir starfsmönnum annarra veitufyrirtækja hagyrtari. Til marks um það má nefna að í Raftýrunni, starfsmannablaði Rafmagnsveitu Reykjavíkur, birtist árið 1971 snjall bragur undir heitinu: „Rafmagn í hálfa öld“. Grípum niður í kvæðið, en það má syngja við lagið „Komdu og skoðaðu í kistuna mína“.
Víst er ódýr og hrein orkumyndin
og kostar vís næstum því alls ekki neitt.
Þótt dagnotkun fjölskyldu fari´ upp á tindinn,
er feikn stórir pottar eru settir á heitt.
Það kostar samt minna að sjóða allan mat
en svæla á dag hálfan Camel, það frat.