Úff. Leikur FRAM og KA er að hefjast. Rikki Daða meiddur. Ómar á bekknum. Þessi leikur má ekki tapast. Maginn er í hnút.
Hálfleikur hjá Luton og Torquay. Við erum 1:0 yfir. Steve Howard með markið. Hann er yfirburðasóknarmaður í þessari deild.
Ef við vinnum, verður það í fyrsta skipti í sögu Luton að liðið vinnur sigur í fyrstu fjórum deildarleikjum sínum. Fimm sinnum hefur það gerst að liðið vinni fyrstu þrjá leiki. Þetta er efnilegt.
* * *
Hér var japanskur gestur á safninu. Hann reyndist vera vetnisgúrú sem er að kynna sér orkumál Íslendinga og hefur greinilega skítnóga peninga. Eftir að hann var búinn að skoða safnið í lengri tíma og ræða fram og aftur við mig, kvaddi hann og trítlaði út í leigubílinn sem beðið hafði eftir honum í á annan klukkutíma með mælinn í gangi.
Jamm.