Skömmu eftir að ég var rekinn úr pönkhljómsveitinni Tony Blair, var ég fenginn til að róta – eða öllu heldur skipaður bílstjóri sveitarinnar. Síðar var ég hækkaður enn í tign og gerður að umboðsmanni.
Nú er útlit fyrir að ég hafi reddað hljómsveitinni giggi – eða reyndar var það Steinunn sem reddaði gigginu, en það kemur á sama stað niður, ekki satt?
Tony Blair mun sem sagt trylla lýðinn á opnu húsi VG í Suðurgötu síðdegis eða snemma kvölds. Þar verður hittarinn „Alltaf hlýtt á Hlemmi“ vitaskuld tekinn, „Cherie Blair“ – lagið sem Cherie Blair fékk ekki að hlusta á – verður frumflutt og heimildir mínar herma að jafnvel verði annað lag frumflutt á staðnum. Þetta verður merkilegt að sjá!
* * *
Alex Salmond snýr að líkindum aftur sem formaður SNP, skoskra þjóðernissinna. Það eru mikil tíðindi, því Salmond er með öflugri stjórnmálamönnum Bretlands í dag.
Þegar ég var í Edinborg sá ég einhverju sinni sjónvarpsþætti sem voru með sama sniði og „Pressukvöldið“ á Sjónvarpinu. Spyrlarnir þrír voru hins vegar ekki úr hópi fréttamanna heldur pólitískra andstæðinga. Þá voru áhorfendur í salnum.
Spyrlarnir komu sem sagt frá íhaldsflokknum, Verkamannaflokknum og Frjálslyndum demókrötum. Þeir áttu í vök að verjast, en gerðu loks þau grundvallarmistök að hjóla í Salmond út af utanríkismálum. Annað eins burst hefur sjaldan sést í pólitískum umræðuþætti eins og þegar Salmond sneri vörn í sókn og fór að spyrja spyrlana út í það hvort þeir styddu veru kjarnorkuflota Bretlands í Faslane-stöðinni.
Endurkoma Salmond í skosk stjórnmál gætu gert næstu þingkosningar áhugaverðar.
* * *
Newell var valinn þjálfari mánaðarins í 1. deildinni. Það er koss dauðans. Sá sem fær þann titil er í vondum málum og tapar einatt og iðulega öllum næstu leikjum sínum.
Til að yfirvinna þessa bölvun verður gripið til heitstrenginga. Ef Luton tekst að sigra í Sheffield á laugardaginn mun ég taka til á skrifstofunni minni! Þetta er ekki lítið loforð.