Bláklukkur

Á gærkvöld kláraði ég leikskránna fyrir næsta leik FRAM á sunnudaginn kemur. Leiðari hennar leggur út af bókinni „Bí­tlar eða bláklukkur“ eftir Jennu og Hreiðar.

ístæða þess að ég svo mikið sem veit um tilvist þessarar bókar er sérstök. Þannig er að í­ Melaskólanum var bekkjunum skipt upp þegar kom að leikfimi. Annað kynið var sent niður í­ leikfimissal en hitt fékk kennslu hjá bekkjarkennaranum í­ einhverri þeirri grein þar sem talið var hentugt að hafa fáa nemendur í­ einu. Á ellefu ára bekk voru það ljóð.

Á Melaskólanum gilti sú regla að grí­slingur sem var kvefaður, gleymdi leikfimisfötum eða gat af öðrum ástæðum ekki tekið þátt í­ tí­manum – þurfti að sitja og fylgjast með hinum. Það mátti nefnilega ekki jafngilda frí­i að gleyma leikfimisdóti.

Engu að sí­ður álpaðist einhver í­ hópnum upp í­ kennslustofu einn daginn, meðan á leikfimistí­ma stóð. Þar uppgötvaði hann að eitthvað skrí­tið var á ferðinni. Stelpurnar sátu í­ makindum við borðin og virtust ekki vera að stauta sig í­ gegnum Skólaljóðin. Þetta kallaði á frekari rannsóknarvinnu.

Næstu tvo tí­ma sendum við út njósnara. Ég var yfirmaður njósnadeildar, en einhverjir kjarkmeiri úr strákahópnum voru settir í­ sjálfa njósnaleiðangrana. Þeir tilkynntu leikfimiskennaranum að þeir hefðu gleymt fötunum heima, voru látnir hlaupa nokkra hringi með okkur hinum en læddust svo út úr salnum og inn í­ skólabygginguna. Þar tók við æsilegt laumuspil, því­ ekki hefði verið gott að hlaupa beint í­ flasið á Braga gangaverði.

Fljótlega tókst okkur að fá góða mynd af því­ sem átti sér stað. Á stað þess að berja öndvegisljóðum í­slenskra skálda inn í­ kollinn á stelpunum, var Dúa kennari að lesa fyrir þær unglingabók.

Með þessa vitneskju að vopni ákváðum við að leggja spilin á borðið. Óðum inn í­ kennslustund og frontuðum kennarann: hvers vegna í­ andskotanum fengju stelpurnar sérmeðferð? Hvers vegna fengju þær að skemmta sér meðan við þræluðum.

Á stað þess að brotna saman, játa sekt sí­na og verðlauna okkur með sætindum og löngum frí­mí­nútum, stóð Dúa kennari keik. Hún benti okkur á að stelpurnar væru fyrir mörgum vikum búnar með námsefni vetrarins úr Skólaljóðunum, á meðan mestallur strákahópurinn væri kominn vel á eftir (enda sumir það sem sí­ðar var kallað lesblindir, aðrir heimskir en flestir latir). – Hins vegar, bætti hún við, væri sjálfsagt mál að lesa fyrir okkur lí­ka…

…og í­ þeim töluðum orðum dró hún fram „Bí­tla eða bláklukkur“ og byrjaði að lesa.

Aðra eins vellu hef ég aldrei á ævi minni heyrt. Frá þessum degi hef ég aldrei efast um það í­ augnablik að „Bí­tlar eða bláklukkur“ sé leiðinlegasta bók sem skrifuð hefur verið. Hana mætti nota til að kveða niður kölska sjálfan.

Eftir stendur að njósnastarfsemi okkar strákanna í­ 5.C tókst vel.

Jamm