Stjörnuveisla Stebba
Jess! Á gær, þegar ég var að leita í bókadrasli heima, þá rakst ég á eintak af Spilatíðindum sem Spilafélag Framtíðarinnar gaf út þegar ég var í menntó. Ég var einmitt í stjórn spilafélagsins þegar það gerðist, ásamt Sibba og Pétri djöfli. – Við vorum raunar afar öflugir í spilamennskunni, því á okkar starfsári voru haldin tvö Trivial pursuit-mót, þar sem í annað skiptið mættu 35 3ja-manna lið, en í hitt skiptið 29 lið. Þá var MR eini skólinn sem treysti sér til að stilla upp sveit í fyrirhuguðu framhaldsskólamóti í Scrabble. Gott ef gömlu skröbblin okkar eru ekki ennþágeymd í kaffiteríunni í MR.
En hvers vegna ætti fundur minn á þessu gamla Spilatíðindablaði að kæta lesendur þessarar bloggsíðu? Jú, ástæðan er sú að í blaðinu er að finna gullkorn úr stjörnuspá Tímans frá vetrinum 1994-5. Og hefst þá lestur:
Tvíburarnir – 21.maí-21.júní
Þú verður kona dagsins með kynþokkann í fyrirrúmi en jafnframt ábyrg í orði og æði. Vondu fréttirnar eru að allir hinir í fjölskyldunni verða öglí.
* * *
Steingeitin – 22.des.-19.jan.
Þú ferð í leiki í snjónum með krökkunum í dag en engum finnst gaman nema þér. Það gengi betur ef þú hnoðaðir snjókallana á gamla mátann. Svo er líka svo erfitt að fá þessi börn til að standa kyrr.
* * *
Bogmaðurinn – 2..nóv.-21.des.
Bogmaðurinn verður fífl í dag. Það er ekkert nýtt.
* * *
Steingeitin – 22.des.-19.jan.
Þú hittir Jónas Jónasson í dag á gangi og sá spyr þig hvort þú sért hamingjusamur. Ekki rota, ekki!
* * *
Fiskarnir – 19.febr.-20.mars
Nokkur galsi mun grípa þig undir hádegi og þú ákveður að gera símaat. Þú hringir í Við sf. og biður um æðstráðandi. Þegar sá svarar spyrðu hvort hann reki Við en honum verður ekki skemmt.
* * *
Fiskarnir – 19.febr.-20.mars
Þú finnur gamlan snigil í bílskúrnum í kvöld og kastar á hann kveðju. Hann mun svara: „Ég er ekki snigill, ég er víxill.“
* * *
Meyjan – 23.ágúst-23.sept.
Á kvöld ætlar makinn að koma á óvart og færir þér risastóran rósavönd en þú eyðileggur allt með því að segja: „Ha, ha. Ég vissi alveg að þú ætlaðir að gera þetta. Ég las það í blöðunum í dag.“
Jamm.