Fórum á Fræbbblana eins og Himmi, en skemmtum okkur öllu betur. Vissulega er mikið af endurunnu efni úr Rokki í Reykjavík í þessari heimildarmynd og því hefði að ósekju mátt stytta hana um 10 mín. Það er heldur ekki margt nýtt í þessari mynd fyrir okkur pönk-nirðina. Reyndar var ýmis fróðleikur í bæklingnum með Viltu bjór væna? sem vert hefði verið að prjóna inn í þessa mynd.
Það er rétt hjá Himma að Bodies eru hinar vanmetnu hetjur þessa tímabils. Djöfull væri ég miklu frekar til í að fara á Bodies-ríjúníon en eitthvað Utangarðsmanna eða Egó-drasl.
Jafnframt langar mig í eintak af unglingablaðinu Halló – það var greinilega snilldin tær.