Það er gott…
…að Páll sé ánægður með póstkortið sem hann fékk sent frá Norðfirði í síðustu viku. Á Færeyjaferðinni keyptum við frímerki á póstkort til: foreldra minna, afa og ömmu, tengdaömmu í Miðfirðinum, Vigdísar mágkonu, tengdapabba og Palla. Allt þetta fólk fékk póstkort, nema Palli. Einhvern veginn fundum við ekki viðeigandi kort.
En það sem Páll er áhugamaður um póst og pósttengd málefni, þá varð ekki hjá því komist að senda honum eitthvað. Þess vegna vöppuðum við við (alltaf gaman að ná svona orðatvítekningum) hjá Bryndísi á pósthúsinu á Norðfirði og keyptum bæði kort og frímerki. – Bryndís er snillingur sem ætti að fara að blogga, hver veit nema að ég stofni fyrir hana síðu um helgina… – Bryndís er líka áhugakona um fána.
Annars er það merkilegt hvað Páll lætur Norðfirðinga fara í taugarnar á sér. Til dæmis gegir hann stöðugt grín að Neistaflugi, sem er náttúrlega langflottasta hátíðin um Verslunarmannahelgina. – Þetta skýrist af því að Palli er Eskfirðingur að ætt og uppruna. Þegar Eskfirðingar þykjast vera stórir menn, þá tala þeir um að steypa upp í Oddsskarðsgöngin. Veruleikinn er hins vegar sá að þegar göngin voru gerð og rætt var um að flytja veginn til Norðfjarðar upp fyrir Eskifjörð, þá máttu Eskfirðingarnir ekki heyra á það minnst. Þeir óttuðust að verða af svo miklum viðskiptum. Eskifjörður er nefnilega fyrst og fremst þjóðvegasjoppa á leiðinni í höfuðstað Austurlands.
* * *
Á gær hringdi í mig vinnufélagi af kynningardeild Orkuveitunnar. Hann fól mér að afla gagna og upplýsinga fyrir Hrafn Gunnlaugsson. Öðru vísi mér áður brá! Kannski fæ ég að leika skrítling í næstu mynd eftir Hrafn?
* * *
Óli Njáll hittir naglann á höfuðið í gagnrýni sinni á Ólaf Teit DV-blaðamann. Hvernig stendur á því að blaðamaðurinn getur ekki nafngreint einn einasta VG-mann sem komið gæti til greina ofarlega á framboðslista í suburbiu? A.m.k. ætti ekki að vera erfitt að láta sér detta í hug nafn Gríms Hákonarsonar. Grímur er einhver allra snjallasti pistlahöfundur í pólitísku vefritaflórunni, eins og sjá má í tíðum greinum hans á vef Ungra vinstri grænna.
* * *
Á kvöld mun ég svo skrópa á krikketæfingu, heldur spila fótbolta með Svenna og félögum. Hann mun eflaust blogga um úrslitin á morgun.
Að bolta loknum er stefnan svo tekin á kvöldmat og friðarfund á Kaffi kúltúre og svo plottfund heima hjá írmanni.
Jamm.