Nei sko! Fór að skoða

Nei sko!

Fór að skoða dagatalið og áttaði mig þá á því­ að kominn er miður júlí­. Þá fór ég að reyna að muna hvenær ég hefði sí­ðast heyrt í­ minni gömlu vinkonu og skólasystur Hjördí­si. Eftir smá leit í­ pósthólfinu komst ég að því­ að það hefði verið laust upp úr áramótum. Eins og mig minnti, hafði stelpan þá upplýst það að hún væri ólétt og lofaði að reyna að eignast á afmælisdaginn minn, 8. aprí­l. – En þar sem ég er algjör durgur steingleymdi ég öllu um málið og tékkaði aldrei á því­ hvort staðið hafi verið við loforðið

Nema hvað, í­ kaffipásunni í­ morgun dundaði ég mér við að slá krí­linu upp í­ þjóðskrá og uppgötvaði eftir smá leit á netinu að þetta mun vera strákur, fæddur í­ mars og meira að segja byrjaður að blogga. – Ég skal sko segja ykkur það!

* * *

Við Hjördí­s vorum bæði í­ 10.Þ í­ Hagaskóla og fórum svo bæði í­ MR. Þar einbeitti hún sér að einhverri sataní­skri stærð- og eðlisfræði en ég var svona meira í­ bjórnum og máladeildinni.

Á 10.Þ voru afskaplega fáir sem ég nennti að tala við. Það skýrðist annars vegar að því­ að ég var fúll og hrokafullur en hins vegar af því­ að það var allt fullt af fí­flum og vitleysingum í­ bekknum. Meðal fárra heiðarlegra undantekninga frá þessu, voru félagi Stefán Jónsson og Hjördí­s. Ég sat við hliðina á Stefáni og blaðraði við hann linnulaust í­ nánast öllum kennslustundum. Á sumum tí­mum, að mig minnir í­ stærðfræði og einhverjum öðrum fögum, vildi Stefán hins vegar fylgjast með og bannaði mér að trufla sig. Þá kom sér vel að hafa Hjördí­si á næsta borði fyrir aftan.

Sjaldnast nenntum við að skiptast á pappí­rsmiðum í­ þessum samskiptum, heldur sneri ég mér einfaldlega við í­ stólnum heilu og hálfu tí­mana. Ekki skil ég hvernig kennararnir þoldu þetta, því­ sjálfur verð ég foxillur ef nemendur eru að gera eitthvað annað á meðan ég er að kenna. – Ég var lí­klega frekar leiðinlegur unglingur, en á móti kemur að unglingar eru það yfirleitt.

Jamm.