Letilíf

Það er varla að ég muni hvenær ég fór sí­ðast út á föstudagskvöldi – eða í­ það minnsta, hvenær ég var ekki kominn í­ hús fyrir miðnætti. Þetta kvöld var ekki undantekning.

Kom heim úr vinnunni um sexleytið, settist strax upp í­ rúm með tölvuna í­ kjöltunni (sem mér skilst að þyki ekki heilnæmt í­ seinni tí­ð) og skrifaði fótboltapistil fyrir mánudagsútgáfu DV. Á ní­unda tí­manum héldum við á Hamborgarabúllu Tómasar til að gúffa í­ okkur. Hef ekki étið þarna áður og var harla sáttur. Ekki eins gott og Gleym-mér-ey-borgarinn á Vitabar, en betra en flestir hamborgarar sem völ er á í­ borginni.

Komum aftur heim eftir matinn. Steinunn sökkti sér niður í­ Sjónvarpið, en ég datt oní­ viskýskápinn og spurningasamningu fyrir undanúrslitaleikina tvo í­ GB. Held ég hafi búið til ansi sniðuga ví­sbendingaspurningu…

* * *

Á morgun er í­ mörg horn að lí­ta. Fæðingarnámskeið, 2.dagur byrjar upp úr hádegi, þá á ví­st að sýna okkur fæðingardeildina á lansanum. Held að tilgangurinn með námskeiðinu sé sá einn að létt ljósmæðrunum lí­fið þegar kemur að því­ að skáka okkur fram og til baka í­ lok aprí­l.

Klukkan þrjú hefst svo leikur ársins – Luton : Hull. Við erum með hálfgert B-lið. Jafntefli væri frábært…