Span

Annasamur dagur í­ meira lagi. Tók á móti hóp frá Austurbæjarskóla í­ morgun. Fí­nn hópur, en erfiður vegna þess að stór hluti nemendanna talaði litla eða enga í­slensku. Kennararnir í­ Austurbæjarskóla eru ekki öfundsverðir og þyrftu að hafa miklu fleira aðstoðarfólk ef vel ætti að vera. Ég spurði hvernig krökkunum gengi að læra í­slenskuna og fékk þau svör að eitt vandamálið væri að fá í­slensku krakkana til að nota í­slensku í­ samskiptum sí­num við þau. Krakkarnir vilja þjálfa sig í­ ensku og grí­pa helst til hennar.

Heimsókn til ísu ljósmóður seinnipartinn. Nú verð ég að fara að setja mig inn í­ þessi fæðingarorlofsmál, hvenær sækja þurfi um í­ orlofssjóðinn o.þ.h. Ekki seinna vænna.

Fæðingarnámskeiðið, 3.hluti, seinni partinn – að þessu sinni farið yfir lyf sem nota má við fæðingar. Fræðslufundur fyrir aðstandendur í­ MS-heimilinu í­ kvöld, taugalæknir situr fyrir svörum. Beint að því­ loknu bruna ég í­ fótbolta vestur í­ bæ.

Allt mun þetta leiða huga minn frá leik kvöldsins – Hartlepool : Luton. Eftir sigurinn á laugardaginn væri ekki hundrað í­ hættunni þótt leikurinn tapaðist og jafntefli væri bara helv. fí­nt. Búast má við færslu um málið laust fyrir miðnætti…

Les á bloggsí­ðum GB-keppenda að viðureign Versló og MK á morgun fari ekki fram í­ í­þróttahúsi Versló, heldur í­ Bláa-sal Verzlunarskólans. Það er fí­nn salur en með ansi litlu sviði. Þar vann maður nú nokkra sigra í­ ræðukeppni í­ gamla daga en tapaði öllu fleirum…