Framandleg flúrpera

Fyrr í­ dag sótti ég sérkennilega flúrperu sem safnið var að fá að gjöf. Hún er undin eins og kaðall. Ekki kunni gefandinn skýringu á þessari sérkennilegu lögun eða hvaða tilgangi hann gæti þjónað. Einhverjar uppástungur, lesendur góðir?

# # # # # # # # # # # # #

Vegna pirringsskrifa minna í­ garð þjónustuversins hjá Tryggingastofnun á dögunum er rétt að taka það fram að ekki eru allir starfsmennirnir jafn óupplýstir. Konan sem við Steinunn ræddum við þegar kom að því­ að skila inn gögnunum var með allt á hreinu og gat svarað okkur skýrt og greiðlega. Plús í­ kladdann.

# # # # # # # # # # # # #

Hvað skal éta í­ kvöldmatinn? Hrí­sgrjónagrautur með blóðmör og lifrarpylsu kemur sterklega til greina…