Ég er orðinn sjónvarpsstjarna á Sjónvarpi Skelfingu sem er systurstöð Útvarps Ótta.
Útvarp Ótti er besta útvarpsstöð landsins um þessar mundir og væntanlega mun Sjónvarp Skelfing gera slíkt hið sama í sjónvarpsgeiranum. Ójá.
# # # # # # # # # # # # #
Á gær fékk ég SMS frá þremur mönnum sem allir skipuðu mér að skipta á Ómega. Þar var furðulegur þáttur í gangi – spurningakeppni í Biblíusögum fyrir unglinga. Garðar Cortés var í spyrilshlutverkinu.
Verulega skringilegt sjónvarpsefni leyfi ég mér að segja.