Glæsilegir tónleikar í Austurbæ í gær og aðstandendum til mikils sóma.
Atriðin voru undantekningarlítið góð, þótt hljóðmennirnir hefðu öðru hvoru gleymt að kveikja á stöku míkrafóni og að hljóðið hafi ekki alltaf verið hnökralaust.
Tvö bestu atriðin voru að mínu mati Trabant og 5ta herdeildin.
Upphafslag Möggu Stínu var sömuleiðis frábært. Sumir duttu niður í að stæla Megas, en skemmtilegast var þó þegar persónulegur stíll einstakra flytjenda skein í gegn. Þannig var afskaplega skemmtilegt að heyra Valgeir, Pálma og KK alla saman taka gamla Megasar-standarda líkt og þetta væru þeirra eigin verk.
Eftir tónleika héldum við fjögur heim á Mánagötu. Enn einu sinni kom þar í ljós hversu fátæklegt safn heimilisins er af Megasarplötum. Ég þarf að gera alvöru úr því að eignast plötuspilara til að ég geti látið greipar sópa í Frostaskjólinu…