Fyrsta pólitíska aðgerðin

Jæja, þá er formannsefnið litla búin að mæta á sí­na fyrstu pólití­sku aðgerð – morgunkaffi Samtaka herstöðvaandstæðinga á 1. maí­.

Að þessu sinni var morgunkaffið í­ Listhúsinu í­ Laugardal. Ég var smeykur um að ný staðsetning gæti bitnað á mætingunni, en var í­ góðu lagi – eitthvað innan við hundrað manns þegar allt var talið.

Ólí­na var klædd í­ sparikjól í­ tilefni hátí­ðarhaldanna, en það verður að viðurkennast að hann er meira bleikur en byltingarrauður…

# # # # # # # # # # # # #

Skemmtikvöldið hjá FRAM tókst vel í­ gær. Stoppaði reyndar stutt. Rumpaði af spurningakeppni leikmanna og þjálfara eins og um var rætt og hlustaði á Össur Skarphéðinsson segja brandara, einkum á kostnað írna Johnsen og Sigga Kára.

Stemningin er fí­n í­ Safamýrinni um þessar mundir. Nú telur maður bara niður dagana í­ mót!