Margt er líkt með mönnunum og tánum…
Sumir hafa áhuga á undarlegustu hlutum og velta því fyrir sér hvort ég sé með loðnar tær?
Því er til að svara að ég er ekki með mikið hár á tánum, nema rétt ofan á stórutánni. Þar er smá brúskur, sem að sjálfsögðu er með pínulitlum krullum. Ef rykkt er harkalega í þennan brúsk rek ég upp hljóð, sem er merkilegt í ljósi þess að almennt séð er ég ekki hársár. – Skrítið, ekki satt?