Þunnur…
Af hverju er ég þunnur í dag? – Sennilega vegna þess að ég drakk of marga bjóra í gær.
En af hverju drakk ég svona marga bjóra í gær? – Sennilega vegna þess að ég er vitleysingur.
OK, ég kaupi það.
* * *
Helvítis! Framararnir töpuðu í gær í Hafnarfirðinum. Það er þó gott að sjá að allt liðið sé orðið leikfært og gaman að sjá Hauk aftur kominn í liðið. Þá er líka gleðilegt að allir fyrrum KR-ingarnir séu farnir frá liðinu. Ef við förum niður, þá er a.m.k. eins gott að það séu engir KR-ingar innanborðs, hvað þá tveir eins og á tímabili í sumar.
Annars veðja ég á Keflavík niður. Það er sannkallað leiðindalið.
Jæja, best að fara að pakka fyrir útilegu helgarinnar. Jamm.