Fokkíng Magnús Hlynur…
…birti í gær myndir þar sem ég sást á auka-allsherjarþingi ísatrúarfélagsins, með þeim afleiðingum að síminn ætlar ekki að stoppa hjá mér.
Félagar mínir í Múrnum eru gjörsamlega að eipa og virðast helst telja að byltingunni hafi seinkað um áratug vegna þessara frétta. Amma mín er hins vegar orðin sannfærð um að ég verði allsherjargoði innan tíðar. – Stuna.
Hið rétta í málinu er að ég var beðinn um að taka að mér fundarstjórn á þinginu í gær, en hef ekki verið félagi í ísatrúarsöfnuðinum nema í hálfan mánuð. (Steinunn og tengdó eru búnar að vera það mun lengur.) Fyrir þinginu lá að staðfesta eða hafna brottvikningu Jörmundar Inga sem allsherjargoða, en með því máli hafði ég bara fylgst í fjölmiðlum.
Til að geta tekið almennilega á verkefninu byrjaði ég á því að tala við báða málsaðila – Jörmund og fulltrúa stjórnarinnar. Þar kom í ljós gríðarleg beiskja og ljóst að fundurinn yrði geysierfiður, enda bar þessum aðilum ekki einu sinni saman um hvers konar fund væri að ræða. Á kjölfarið ræddi ég við hina og þessa sérfræðinga í fundarsköpum og lögum, þar á meðal Illuga Gunnarsson sem fannst bráðfyndið að ég hafi látið plata mig út í þetta og sagði þetta jafngilda meiraprófi í fundarstjórnun.
Fundurinn gekk svo þokkalega fyrir sig, þótt mikið hafi verið um frammíköll og að á tímabili hafi dagskrár- og frávísunartillögurnar hrannast upp. Jörmundur tapaði kosningunni, en ekki hef ég heyrt neitt um að mér hafi verið kennt um þá niðurstöðu.
* * *
Að fundi loknum héldum við Steinunn heim að hlaða batteríin fyrir menningarnóttina. Það varð þó minna um rölt á milli staða en til stóð, því að Rímna- og rappdagskráin stóð frá átta til tólf. Þar sátum við ásamt Kötu og Ernu undir einhverju alsérstæðasta prógrammi sem ég hef séð. Líklega verðum við Kata að hnoða saman einhverju um það á Múrinn, en ég hef það þó að segja að Erpur er snillingur og ekkert minna!
* * *
Fokk! Luton tapaði þriðja leiknum í röð. Stigalausir eftir þrjár umferðir, mér verður illt.
Framararnir VERíA að standa sig fyrir norðan í kvöld…