Milljón dala hugmynd Í

Milljón dala hugmynd

Á gær vorum við Steinunn og Steinþór blogghatari á Mánagötunni. Þar góndum við á þátt af ER, sem ég missi blessunarlega yfirleitt af. Það er nú samt gaman að sjá fólk hlaup fram og til baka og hrópa óskiljanleg nöfn á lyfjum, lækningatólum og furðusjúkdómum. Þá kom upp sú hugmynd að búa til eins þátt með hugví­sindamönnum en ekki læknum.

Hugsið ykkur bara ef sögusviðið væri rannsóknarstofnun í­ hugví­sindum, t.d. Hugví­sindastofnun Háskólans, þar sem fylgst yrði með einkamálum prófessora og doktorsnema milli þess sem þeir leystu úr vandamálum tengd fræðunum í­ kapp við tí­mann – helst á troðfullri kennarastofu. Þar gætu þau hrópað hvert á annað mismunandi greiningar sí­nar á textavenslum, postmóderní­skum fræðikenningum og skrifað ritdóma í­ kapp við skilafresti. Þá gætu komið inn í­ þetta siðferðileg álitamál – ætti unga heimspekistúdí­nan að fremja föðurmorð í­ fræðunum með því­ að saka aldurhniginn prófessorinn sinn um að þekkja ekki til post-kólonalí­alismans í­ ritfregn í­ Skí­rni. Efnilegi sagnfræðilektorinn gæti náð að hindra stöðuframgang samkeppnisaðilans með því­ að hanka hann á því­ að stela frá Derrida eða vitna vitlaust í­ Sögu Stjórnarráðsins eftir Agnar. – Og hver sefur hjá í­talska skiptikennaranum? Uppskafningurinn á skrifstofunni eða taugaveiklaði skorarformaðurinn?

Þetta stöff myndi slá í­ gegn. Pottþétt!