Ofskynjunarlyf í bjórnum?
Vá, einhverju var byrlað út í bjórinn sem ég drakk í gærkvöld. Nú man ég sjaldnast drauma, en í nótt dreymdi mig tóma steypu og mundi hvert einasta smáatriði þegar ég vaknaði. Fáránlegasti draumurinn var eitthvað á þessa leið:
Ég sit heima í stofu og kveiki á sjónvarpinu rétt um það leyti sem sjö-fréttirnar eru að byrja. Á skjánum er Logi Bergmann grafalvarlegur og greinilega í stellingum til að segja stórfréttir.
Logi: Íslenskur fræðimaður hefur játað á sig ábyrgðina á atviki tengdu Íslenskri erfðagreiningu sem átti sér stað skömmu eftir að fyrirtækið var fyrst stofnað. Frá þessu er sagt í nýútkominni bók um íslenskar erfðarannsóknir sem búast má við að veki mikla athygli
Ég hugsa strax: þetta hlýtur að tengjast Steindóri J. Erlingssyni. Nú liggur hann í því.
Klippt er á fréttamann sem stendur fyrir utan höfuðstöðvar íE í Vatnsmýrinni og ætlar greinilega að taka viðtal við Pál Magnússon, fjölmiðlafulltrúa fyrirtækisins. Páll er mjög þungbrýndur. Fréttamaðurinn segir: Á bókinni „Genin okkar“ eftir vísindasagnfræðinginn Steindór J. Erlingsson kemur fram hörð gagnrýni á Íslenska erfðagreiningu og saga fyrirtækisins er rakin allt frá því að það var stofnað um miðjan níunda áratuginn. Á bókinni játar Steindór að hafa sjálfur staðið á bak við símaat sem átti sér stað í fyrsta starfsmánuði fyirtækisins, en nokkuð var fjallað um málið á sínum tíma. Við skulum skoða gamlar fréttamyndir af því…
Skipt er yfir á slaka upptöku úr fréttatíma frá árinu 1986 eða 1987. Jóhanna Vigdís Hjaltadóttir situr í stól fréttamannsins. Hún er með það brjálaðasta 80s-hár sem sést hefur.
Jóhanna: Fyrirtækið Íslensk erfðagreining varð fyrir því á dögunum að gert var hjá því símaat. Frá þessu var fyrst sagt í Krakkafréttatímanum á Stöð 2.
(Fyrir þá sem ekki muna hélt Stöð 2 úti fréttatíma fyrir börn, unnin af börnum í árdaga stöðvarinnar. Þar voru að mig minnir Magnús Geir Þórðarson, Sólveig Arnarsdóttir og Kristján Eldjárn heitinn meðal fréttamanna. – Er það misminni?)
Sýnd er upptaka úr Krakkafréttatímanum þar sem fréttamaður er að taka viðtal við forstöðumann Íslenskrar erfðagreiningar. Sá reynist vera Vilhjálmur Egilsson og er honum mjög brugðið.
Ég sit heima í stofu og hugsa: „Steindór minn, núna liggurðu svo sannarlega í því. Nú ertu búinn að gefa Kára Stefánssyni höggstað á þér og átt ekki viðreisnar von úr þessu.“ – Skyndilega átta ég mig hins vegar á því að fréttamaðurinn ungi er Kolbeinn Óttarsson Proppé, líklega 13- 14 ára gamall. Raunar er með ólíkindum að ég átti mig á því að þetta sé Kolbeinn, enda er barnið á skjánum ógurlega ófrítt. En það sem meira er, þá keðjureykir hann meðan á viðtalinu stendur.
Kolbeinn: …og þú ert sem sagt að segja að einhver maður hafi hringt í ykkur og kynnt sig sem Fáviti.is?
Vilhjálmur: Já, hann var kurteis í fyrstu en svo fór hann að ausa yfir okkur skömmum og svívirðingum.
Kolbeinn:Og hvaða nöfnum kallaði hann ykkur?
Vilhjálmur: Tja, meðal annars kúkalabba. Og þá fór okkur að gruna hvers kyns var. Svo er Fáviti.is frekar óvenjulegt nafn.
Kolbeinn: Og hvernig varð ykkur við?
Vilhjálmur: Tja, fólki var náttúrlega brugðið. Það er rosalegt að lenda í svona hlutum.
Klippt aftur á fréttamanninn fyrir utan hús íE.
Fréttamaður: En nú er sem sagt komið í ljós að maðurinn sem kynnti sig sem Fáviti.is var enginn annar en Steindór J. Erlingsson. Steindór – hvers vegna kýstu að ljóstra þessu upp núna?
Steindór hlær tryllingslega. Ég hugsa: fokk, allt er tapað!
Vakna…