Samsæri þagnarinnar
Vá hvað það var erfitt að mjaka sér út úr húsi á áðan. Var í fínu partýi hjá Svenna Guðmars. Þar ræddi ég m.a. við Magnús Geir leikhúsfrömuð um menningarlífið í Aberystwyth (stafsetning óljós), Þóri um fótbolta, Óla Jó um eitthvað, Sigga Óla um stöðu jafnréttismála og fékk sláandi fregnir af framgangi mála í East Enders. – Hvernig er það Sigga er það virkilega rétt að þeir hafi drepið Jamie? Eru menn orðnir geggjaðir? Það er ekki hægt að drepa Jamie og Steve Owen á sama árinu…
Annars gerðist landsins besti og frægasti bloggari sjónvarpsstjarna í gær. Ég mætti og gaf komment á atburði ársins hjá Agli Helgasyni. Egill talaði að venju við sama fólkið, með þeirri undantekningu þó að hann varð við áskorun minni að tala við Sigga pönk. Það var vel til fundið.
Ég tók svo eftir því að eitt af svörunum mínum fimm var klippt út úr þættinum. Það var þegar ég var spurður hvað hefði verið best á árinu og ég nefndi að sjálfsögðu hversu glæsilega Framarar hefði bjargað sér frá falli með sigri í lokaumferðinni á Akureyri. Þetta var svo klippt út að undirlagi KR-mafíunnar. Hvet alla Framara til að senda Skjá einum harðorð skammarbréf. Þeir munu ekki komast upp með að kæfa okkur með þögninni. Berjumst bræður!