Fleiri áramótaheit… But personally I

Fleiri áramótaheit…

But personally I can’t help feeling that when Joe Strummer’s dead while Cliff Richard lives, there can be no more solid proof that there is no God.
– Mark Steel, 1.1.2003

Jæja, aldrei þessu vant tók ég upp á því­ að sverja áramótaheit á Múrnum, þess efnis að flytja til landsins erkisnillinginn George Monbiot. Raunar er ég þegar farinn að slá af þessu loforði, þar sem ég er alveg til í­ að ræða það að flytja inn einhvern annan útlending en Monbiot, enda enginn hörgull á fólki sem gaman væri að fá til landsins. Þannig mun ég beita mér eins og ég get fyrir því­ að VG bjóði Tommy Sheridan, formanni skoskra sósí­alista á landsfund flokksins næsta haust.

Eftir að hafa lesið markmiðaskrá Pönkarans, sé ég að nauðsynlegt er að bæta við þennan markmiðalista. Pönkhjúkkan telur upp þá tónleika sem hann stefnir að því­ að halda á árinu og bæklinga sem hann langar til að gera. Sérstaklega lýst mér vel á að hann ætli að hrista upp í­ 1. maí­ og pönkast á verkalýðsforkólfunum. Pant fá að vera með! – 1. maí­ er lí­klega ömurlegasti dagur ársins eins og málum er núna háttað. Það er búið að breyta kröfugöngunni í­ skrúðgöngu með einhverjum h******* dixí­lögum og ræðuhöldum dauðans. Ég trúi ekki öðru en að hægt sé að fá fólk til að gera eitthvað að viti á þessum degi.

Og úr því­ að farið er að tala um aðgerðir sem brýnt er að efna til, þá er alveg ljóst að þegar og ef Bandarí­kin fara að drepa fólk í­ írak verða friðarsinnar að láta í­ sér heyra. Ef svo fer sem horfir mun George Bush sjá manni fyrir nægum verkefnum í­ janúar, febrúar og jafnvel lengur. – Af sama toga eru svo útgáfuverkefnin sem Samtök herstöðvaandstæðinga þurfa að rekast í­. Stór Dagfari verður að koma út á næstu vikum og seinni hluta ársins verður að byrja á næsta stóra útgáfuverkefni – ljóðakverinu margumrædda.

Á flokkapólití­kinni ætla ég að reyna að halda mér eins mikið til hlés og mögulegt er á kosningaári, en ef svo fer sem horfir með einn félaga minn er ljóst að það mun ekki takast. Þetta verða því­ býsna hektí­skir mánuðir fram að kosningum.

Vinnan býður upp á verkefni lí­ka. Ef ég fæ Sverri Guðmunds til starfa í­ sumar (já Sverrir, þetta er formlegt vinnutilboð) ætti að takast að stokka sýninguna upp allverulega hér á safninu. Svo verð ég að láta til mí­n taka varðandi Gvendarbrunna- og Perluna. Á báðum stöðum er fyrir hendi frábær sýningaraðstaða sem fyrirtækið er ekki að nota að neinu viti.

Akademí­skt eru ýmis tækifæri en fátt fastákveðið. Held reyndar fyrirlestur í­ febrúar ásamt Skúla Sigurðssyni, en þar fyrir utan hef ég ekki lofað að skila neinu frá mér. Auðvitað ætti ég að drullast til að skila grein í­ Sögu. Annað væri aumingjaskapur. Þá verð ég að gera skurk í­ að fara í­ gegnum gömlu bréfin frá Steinþóri langafa. Ef ég geri það ekki, gerir það enginn og það er fullt af merkilegum hlutum að finna þarna.

Er þetta ekki prýðilegur áramótaheitalisti?