Sigurblogg
Jamm, Katrín (sem ég hef ekkert uppá að klaga) hefur á réttu að standa. Ég skrifa sigurblogg! En ekki út af einhverri spurningakeppni – ónei! Þar er ég hlutlaus og vona að báðum liðum gangi vel. Ég hef allt aðrar ástæður til að hrósa sigri.
* Ég hrósa sigri vegna þess að samkoman í Austurbæjarbíói í gær tókst frábærlega. Það var góð stemning og pottþétt dagskrá. Ég er að verða svo mikill menningarboli að það er engu lagi líkt.
* Ég hrósa sigri vegna þess að nýju barmmerkin okkar Palla, sem Svenni tók þátt í að gera eins og Steinunn hefur þegar upplýst, eru að slá í gegn. Við Palli erum konungar barmmerkjanna!
* Ég hrósa sigri vegna þess að Neal Pollack-bókin sem ég pantaði á Amazon fyrir löngu er loksins komin og er fantagóð.
* Ég hrósa sigri vegna þess að Framararnir eru langflottastir og kjöldrógu Valsara í gær. Það er svo gaman að vinna Val í handbolta. Ég myndi skipta á tuttugu sigrum á Gróttu/KR og viðlíka skítaliðum og einum sigri á Val.
* Ég hrósa sigri vegna þess að í kvöld mun Andri Fannar sökkva KR-ingum í Egilshöllinni. 2003 verður stóra tímabilið hjá Safamýrarstórveldinu…