Fimmti maí
Fimmti maí er töffaraleg dagsetning, að ég tali ekki um nú í ár – því þversumman af 2003 er jú fimm!
Þetta er fæðingardagur merkismanna. Má þar nefna Karl Marx og Sören Kirkegaard – ekki amalegir gaurar það!
Þennan dag árið 1865 er einnig fyrsta skráða dæmið um lestarrán. Fyrir okkur tæknisögunördana eru lestarráðn heillandi fyrirbæri, því þau sýna fram á það hvernig tilkoma tæknikerfa opnar nýjar og óvæntar leiðir manna til að nýta sér tæknina á annan hátt en til stóð. Einu sinni las ég bók eftir Wolfgang Schievelbusch um lestarferðir, tíma og rúm – en þar var fjallað um lestarmorð, sem er vissulega ekki það sama og lestarrán. Man ekki hvort bókin tók á síðarnefnda fyrirbærinu neitt sérstaklega. – En fín bók!
Bobby Sands dó þennan dag árið 1981. Það markaði þáttaskil í stjórnmálasögu Norður-írlands. Einhverju sinni skrifaði ég þessa grein á Múrinn um hungurverkfallið sem dró Bobby Sands og félaga til dauða. Á kjölfarið lýsti Davíð Logi Sigurðsson, blaðamaður í erlendu deildinni á Mogganum því yfir að með henni væri ég „að lýsa stuðningi við hryðjuverk“. Þau ummæli eru samt ekki nema á pari miðað við flest það sem erlenda deildin á Morgunblaðinu sendir frá sér…