Dómsmál í uppsiglingu Frægasti og

Dómsmál í­ uppsiglingu

Frægasti og besti bloggari landsins varð fyrir lí­kamsárás í­ gær. Aðförin var óhemju hrottaleg og ljóst að árásarmaðurinn, Guðbjartur Jón Einarsson hálfþrí­tugur húsasmiður, hafði ekkert gott í­ hyggju. Tildrög árásarinnar voru þau að Stefán (það er sérstakt átak í­ gangi hjá mér um að gera meira af því­ að tala um sjálfan mig í­ þriðju persónu) var að spila fótbolta í­ íþróttahúsinu á Seltjarnarnesi í­ gærkvöld.

Þegar leikar stóðu sem hæst fékk Stefán sendingu frá samherja þar sem hann var staddur á besta stað rétt fyrir utan ví­tateig andstæðinganna. Hann hugðist snúa sér í­ loftinu og negla knettinum í­ bláhornið og hefði það svo sannarlega orðið glæsimark. Kemur þá ekki þrjóturinn Guðbjartur aðví­fandi og setur hné sit í­ veg fyrir hægri fót Stefáns sem neglir í­ hnéskelina. Undir venjulegum kringumstæðum hefði hnéskelin látið undan og skúrkurinn fengið makleg málagjöld, en það er til marks um illan ásetning Bjarts að hann var með hlí­f á hnénu. Fyrir vikið stóð hann eftir en besti og frægasti bloggarinn engdist um á gólfinu.

Þegar meiðslin voru tekin út seinna um kvöldið kom í­ ljós að táin við hliðina á hægri-stórutá var stokkbólgin. Við röntgenskoðun á Landsspí­talanum kom í­ ljós að táin er brotin. Ekki vildi læknirinn þó spelka þetta heldur lét nægja að votta mér samúð sí­na og rukka mig um komugjöld og fyrir myndatökuna. Aðspurður sagðist læknirinn ekki vita til þess að þessi tiltekni hluti mannslí­kamans hefði sérstakt nafn. Giskaði á „ví­sitá“ – en sú ágiskun virkar ótrúverðug.

Enn hefur ekki verið ákveðið hver verða næstu skref í­ þessu máli. Mikilvægt er að það komi fram að frægasti og besti bloggari landsins ber ekki kala til Bjarts eftir þetta atvik. Markmiðið er ekki að koma fram hefndum, heldur að ná fram réttlæti – milljónum króna í­ skaðabætur.

Bjartur má því­ eiga von á að heyra í­ lögmanni mí­num vegna þessa máls. Enn er þó ekki ljóst hver mun sjá um að reka málið fyrir mig. Vonandi mun Óli Jó ekki láta fjölskyldutengslin blinda réttlætiskennd sí­na og segja sig frá málinu. Glæpamönnum ber að refsa – skiptir engu þótt þeir séu litlu bræður. Ef Ólafur afþakkar málið gæti þetta orðið frumraun Kjartans í­ réttarsalnum, en hann mun í­ það minnsta koma að því­ sem vitni.

Þó besti og frægasti bloggarinn sé ekki löglærður maður sýnist honum nokkuð augljóst út á hvað kröfugerðin í­ málinu mun ganga. Farið verður fram á skaðabætur og miskabætur vegna lí­kamlegs og andlegs ofbeldis. Misbeiting lí­kamsburða kemur einnig til greina sem sakarefni. Eðlilegar bætur liggja væntanlega á bilinu 5-15 milljónir.

Varakrafan væri sú að fá að brjóta tánna á Bjarti.