Merkilegt að ég skuli ekki hafa bloggað um þetta fyrr, en sáu menn hina óralöngu frétt Stöðvar 2 um Hulk-frostpinna og sterk litarefni? Hvað var eiginlega í gangi? Þriggja mínútna fréttaskýring þess efnis að Hulk-íspinnar liti allt sem fyrir verður grænt…
Hver eftirtalinna var mest að klúðra:
i) Fréttamaðurinn sem bjó til fréttina
ii) Fréttastjórinn sem hleypti henni í gegn
iii) faðirinn sem hugsaði: „Hmmm… nú er dóttur minni örugglega ekki strítt nóg í skóla. Best að ég fari í sjónvarpið og lýsi grænum hægðum hennar – það ætti að duga…“
iv) Klipparinn sem setti saman fréttina, en spilaði EKKI „Græna frostpinna“ með SH-draumi undir