Herra Rhamsez veltir fyrir sér táknum með dánartilkynningum í Mogganum. Hann segir:
Ég var að fletta í gegnum moggann í gær og rakst þar á tákn sem ég hef ekki séð áður. Vinnufélagi minn benti mér á stjörnu við eina minningargreinina sem hvorugur okkar vissi hvað stæði fyrir. Við minningargreinar kristinna manna er nefnilega venjulega settur kross, hjá gyðingum er davíðsstjarnan og hjá trúleysingjum oft og iðulega mynd af blómi (svo er mér allavega sagt). En við eina minningargreinina var stjarna sem hvorki líktist davíðsstjörnunni, krossi né blómum, þetta var bara ósköp venjuleg látlaus sjöhyrnd stjarna (eða níhyrnd – hafði allavega oddatölufjölda horna). Veit einhver hvaða trúarbrögðum þessi stjarna tilheyrir?
Mín tilgáta er sú að þetta sé upphafið að nýrri hefð – stjörnugjöf í minningargreinum, þar sem hinum látna væru gefnar einkunnir.
Eðalnáungar myndu þannig fá ****
Gott og viðfelldið fólk fengi ***
Fólk í góðu meðallagi fengi **
Miðlungsskemmtilegt fólk léti sér nægja *
Leiðindagaurar fengju 0 og verulega hvimleitt fólk fengi jafnvel hauskúpur að hætti Kolbrúnar Bergþórsdóttur. – Snjallt ekki satt?