Er fyrsta „bloggbyltingin“ farin út um þúfur?
Datt niður í að lesa írönsk blogg – raunar einkum síður fólks af írönsku bergi brotið en sem býr í öðrum löndum. Þar ber fyrst að nefna Hajir sem gagnrýnir harðlega klerkastjórnina. Meðal annars fyrir illa meðferð á kúrdum og súnnítum.
Hann linkar meðal annars á „íranskt stelpublogg„, sem því miður byggist einkum upp á að líma inn fréttir tengdar málum í íran og „guðleysingjablogg“ sem hefur ekki verið uppfært í nokkrar vikur.
Merkilegt er að sjá að þessi kimi bloggheimsins virðist hafa bundið miklar vonir við stúdentamótmæli 9. júlí – þar sem klerkaveldið myndi fá á baukinn. Þá kvarta þau undir ritskoðun á bloggi og jafnvel árásir á blogspot. Eitthvað rámar mig í að hafa heyrt af stúdentamótmælum í íran á þessum tíma, en umfang þeirra virðist ekki hafa orðið nándar nærri jafn mikið og vonir stóðu til. Kannski blandast þar inn í dauði síamstvíburanna. Sælt er sameiginlegt skipbrot og þjóðarsorg hefur ekki ýtt undir mótmælahug hjá fólki.
En það er stórmerkilegt að lesa þessi blogg. Þau gefa mjög áhugaverða innsýn inn í heim sem maður þekkir ekki nægilega vel.